utlond.is
Staður
Barcelona
höfuðborg Katalóníu

Barcelona hefur mikla sérstöðu meðal annarra borga Spánar enda líta heimamenn svo á að hún sé höfuðborg í sjálfu sér. - Höfuðborg hina stoltu Katalóníubúa sem líta á sig sem sérstaka þjóð með eigin tungumál.

Lengi vel urðu Katalónar að þola undirokun og hvað sérstaklega rammt að því á Francó-tímanum en einræðisherrann gerði sitt besta til að þurrka út þjóðarvitund Katalóna. Hann hafði ekki árangur sem erfiði og í dag er sterk vitundarvakning um allt það sem sérgreinir þá sem þjóð. Þar skiptir tungumálið mestu en segja má að borgin öll sé lifandi tákn um þá þjóðernisvakningu sem nú ríkir meðal Katalóníubúa.

Barcelona er næst stærsta borg Spánar og stærsta hafnarborgin við Miðjarðarhafið en hún liggur á milli ánna Llobregat og Besòs. Höfnin er mikilvæg og styður við verslun og iðnað í Katalóníu sem hefur lengst af verið auðugasta hérað Spánar. Katalónar standa undir um það bil 8% af þjóðarframleiðslu Spánar eða töluvert meira en íbúafjöldi þeirra segir til um. Til borgarinnar koma um 10 milljónir ferðamanna á ári eða einn fimmti þess sem kemur til Spánar á hverju ári.

Íbúar Barcelona voru taldir vera 1.600.000 árið 2005 en íbúafjöldin hækkar upp í 4.700.000 séu íbúar aðliggjandi byggða taldir með.

Óhætt er að segja að Ólympíuleikarnir 1992 hafi skipt miklu máli fyrir borgina en þá var hafist handa við miklar framkvæmdur út um alla borg. Skipti þar ekki minnstu þær miklu framkvæmdir sem ráðist var í við sjávarsíðuna og má segja að borgin hafi verið opnuð út til sjávar.

Borgin er mjög gömul, sagan segir að karþagóski bærinn Barcino hafi verið stofnaður af Hamilcar Barca, sem var faðir Hannibals sem gerði Rómverjum lífið leitt. Borgin hefur í gegnum tíðina verið mikilvæg miðstöð valda og voru konungarnir af Aragón upprunalega greifarnir af Barcelona og stjórnuðu þaðan miklu veldi.

Meðal frægra Barcelonabúa eru myndlistarmaðurinn Joan Miró (en í borginni er safn tileinkað honum) og Antoni Gaudí sem margir telja rétt að kalla áhrifamesta hönnuð borgarinnar. Gaudí hannaði eina frægustu byggingu borgarinnar, kirkjuna Sagrada Família sem þýðir heilög fjölskylda á katalónsku. Hún hefur verið í byggingu síðan á síðasta hluta 19. aldar og telja sumir að byggingu hennar muni aldrei ljúka. Eigi að síður er hún orðin eitt helsta tákn borgarinnar.