Orðið eitt vekur enn blendnar tilfinningar. Höfuðborg þriðja ríkisins og krúnan í djásni Hitlers - já, saga Berlínar er ekkert venjuleg. Í dag er borgin iðandi heimsborg sem hefur búið við gríðarlega uppbyggingu síðan Berlínarmúrinn féll 1989 og sameining Þýskalands hófst. Í Berlín í dag má sjá allt sem prýðir áhugaverða heimsborg en einnig er hún dugleg að varðveita minningar um gleði og sorg í sögu sinni.
Berlín er höfuðborg Þýskalands og eitt af 16 sambandsríkjum landsins. Borgin er í hjarta sambandsríkisins Brandenburg í norðaustur hluta landsins þar sem hún stendur við árnar Spree og Havel. Innan borgarmarkanna búa um það bil 3,4 milljónir íbúa og er Berlín því stærsta borg Þýskalands og önnur fjölmennasta borg Evrópusambandsins, næst á eftir London. Til höfuðborgarsvæðisins teljast um 4,9 milljónir íbúa og er það fimmta stærsta í Evrópu.
Borgin þekur 890 ferkílómetra lands og er víðfeðm með miklum görðum. Þar má einnig finna falleg breiðstræti og gömul borgarhverfi. Óhætt er að segja að það taki tímann sinn að skoða borgina.
Borgin er ein sú áhrifamesta í Evrópu, hvort sem horft er til menningar, lista, vísinda eða stjórnmála. Berlín er mikilvæg samgöngumiðstöð milli austurs og vesturs og hefur ávallt verið pólitísk þungamiðja í Evrópu. Borgin hýsir merkilega og áhrifaríka háskóla, söfn og listhús.
Efnahagur borgarbúa byggist á þjónustu öðru fremur en þar má finna fjölbreytta atvinnustarfsemi á sviði smáiðnaðar og hátæknifyrirtækja auk vaxandi ferðamannaþjónustu. Þá er fjölmiðla og listastarfsemi hverskonar fyrirferðamikil.
Berlín er ekki ýkja gömul og eru ekki skráðar heimildir um búsetu þar fyrr en á 13. öld. Frá árinu 1701 var hún höfuðborg Prússlands og hefur síðan þá gengt stöðugt mikilvægara hlutverki í stjórnmálasögu Þýskalands. Þannig var hún höfuðborg þýska heimsveldisins 1871-1918, Weimar-lýðveldisins frá 1919-1932 og þriðja ríkisins frá 1932-1945. Eftir heimsstyrjöldina síðari var borginni skipt í tvennt á milli hernámssvæða. Þannig varð Austur-Berlín höfuðborg Austur-Þýskalands á tímum kaldastríðsins en fljótlega eftir sameininguna 1990 var hún gerð að höfuðborg hins sameinaða ríkis.