Yorkshire, sem er í norðausturhluta Englands, var fyrr á tímum stærsta sýsla landsins. Í dag er henni skipt upp í fjóra hluta. Saga Yorkshire er löng og áhugaverð. Fundist hafa minjar um mannvistir frá bronsöld í Yorkshire. Þegar Rómverjar komu árið 43 e.kr., sigruðu þeir þjóðflokk Kelta. Til eru leifar af virki sem þeir reistu til að verjast innrás Rómverja. Þegar Rómverjar fóru, náðu Keltar aftur yfirráðum. Þau héldust fram að innrás dönsku víkinganna á 9. öld. Þar sem í dag er York, gerðu þeir að höfuðstað sínum og skýrðu Jórvík. Helst borgir Yorkshire urðu til á 11. öld, eftir að Vilhjálmur bastarður réðst inn í landið árið 1066.
Söguleg arfleifð Yorkshire birtist í fjölda virkja og kastala, einnig klaustra. Dæmi um kastala, eða rústir þeirra, frá miðöldum er Scarborough Castle og Helmsley Castle. Glæsilegt dæmi um kastala frá síðari tímum er Castle Howard. Rústir klaustursins í Whitby eru tilkomumiklar og svo má lengi telja.
Hugur Englendinga til sveita Yorkshire lýsir sér vel í orðatiltækinu að Yorkshire sé “guðs eigið hérað”. Í North York Moors þjóðgarðinum er að finna dýralíf, sögulegar byggingar, fornminjar, ævafornt skóglendi og falleg þorp. Enskt landslag sýnir þar sínar bestu hliðar. Háir sjávarklettar, afvirknar strendur og grösugir dalir draga til sín fjölda ferðamanna. Í The Yorkshire Dales National Park er einnig leitast við að varðveita náttúru, dýralíf og sögulega arfleifð. Til þess er tekið hversu verndun þjóðgarðsins hefur tekist vel. Fleiri staði má nefna þar sem landslagið hefur aðdráttarafl eins og Howardian Hills og Nidderdale.
York er sögufræg borg, þar sem mannvirki frá miðöldum hafa varðveist. Helst ber að nefna York Minster sem er stærsta gotneska kirkjan í N-Evrópu. Þar hefur verið kirkjustaður í meira en þúsund ár. Borgarmúrar frá tímum rómverja eru einstakir. Það má einnig segja um gróðurinn innan múranna, en fyrr á tímum voru tekin sýnishorn af ensku flórunni í miklum mæli og er þar að finna gróðurtegundir sem ekki finnast annars staðar. Shambles, elsta gata í York eða frá 11. öld hefur stundum verið nefnd best varðveitta miðaldargatan.