utlond.is
Staður
Kaupmannahöfn
höfuðstaður Danmerkur

Kaupmannahöfn hefur stundum verið nefnd Feneyjar norðursins en sumum finnst að Stokkhólmur eigi þann titil betur skilið. Báðar borgirnar eru reistar á síkjasvæði og skurðir og vatnasvæði einkenna Kaupmannahöfn enn þann dag í dag.

Borgin er höfuðborg Danmerkur og var höfuðborg Íslands í fimm aldir. Borgin er því óvefengjanlegur hluti af Íslandssögunni og tengsl Íslendinga við borgina er enn mjög sterk. Þó ofrausn sé að segja að Danmörk hafi náð því að vera mikið nýlenduveldi þá var Kaupmannahöfn miðja veldis Dana og enn eru Grænland og Færeyjar í ríkjasambandi við Danmörku. Kaupmannahöfn er því enn mikilvæg stjórnsýslumiðstöð fyrir þessi lönd.

Bruninn mikli í Kaupmannahöfn árið 1728 er að margara dómi einn skelfilegasti atburður Íslandssögunnar en þá skemmdust og eyðilögðust allmörg ómetanleg íslensk handrit.

Kaupmannahöfn er stærsta borg Danmerkur og hún er staðsett á Sjálandi. Með Stórabeltisbrúnni fékkst beint vegasamband við Svíþjóð og er borgin þar með á vegamótum norðurs og suðurs.

Kaupmannahöfn er vinsæll áfangastaður ferðamanna enda líflegt og fjörugt skemmtanalíf í borginni auk þess sem mikið er um krár og veitingastaði. Í hjarta borgarinnar er Tívolí, einn áhugaverðasti skemmtigarður heims.