Huggulegt nýlegt hótel með góðum morgunmat. Herbergin þokkalega rúmgóð og boðið upp á regnhlífar í andyrinu! Mjög góð staðsetning við Christianshavn, róleg gata en aftur aðeins nokkurra mínútna gangur í fjörið í Nýhöfn. Kongens Nytorv og Strikið eru í þægilegu göngufæri. Bjóða afslátt af helgargistingu.