Íbúðagisting er hentugur kostur fyrir fjölskyldur og hópa. Það er mun ódýrara en að dvelja á hóteli og aðstaðan ólíkt betri. Allar íbúðirnar eru búnar húsgögnum og nauðsynlegum húsbúnaði. Sængurföt og handklæði fylgja. Hægt er að fá vikuna á 2.500 d.kr. og upp úr. Það fer eftir stærð og gerð íbúða svo og staðsetningu. Ekki er gefin út nákvæm verðskrá, því íbúðirnar eru líka misvel búnar þægindum, þær dýrari er oft með þvottavél, uppþvottavél, internetteningu o.s.frv. Rétt er að benda á að þar sem einstaklingar eru að leigja út heimili sín í gegnum leigumiðlun, eru íbúðirnar mjög ólíkar. Ekki er víst að öllum finnist ódýrustu íbúðirnar standast lágmarkskröfur. Almennt eru þetta vel boðlegar íbúðir, sem auðvitað verða glæsilegri eftir því sem ofar dregur í verðskránni.
Miðað er við 7 daga lágmarksdvöl. Sé óskað eftir styttri leigutíma, er ekki hægt að fá pöntun staðfesta fyrr en rétt fyrir brottför. Mánaðarleiga er hlutfallslega ódýrari en vikuleiga. Mælt er með því að panta 2-4 vikum fyrir brottför.