Vilborg Ingvaldsdóttir rekur gistihúsið LaVilla í Kaupmannahöfn en hún opnaði það árið 1999. Gistihúsið er á Amager, rétt við háskólann en Vilborg hefur búið í Kaupmannahöfn undanfarin 25 ár. Vilborg býr sjálf í húsinu ásamt manni sínum en þar er ein svíta sem er svefnherbergi og stofa með baðherbergi og getur rúmað sex manns. Einnig eru fjögur herbergi sem rúma fjóra hvert, eldhús og borðstofa. Nýlega tók Vilborg annað hús í notkun, þar eru flest herbergin með eigin baðherbergjum þannig að nú er hún með tvö gistiheimili. Unnið er að stækkun nýja hússins þannig að þegar það verður tilbúið verður það með 12 herbergjum þannig að innan skamms getur Vilborg boðið upp á gistingu í 17 herbergjum sem er gott fyrir hópa.
Við húsin er garður þar sem gestir geta setið úti. Svo er húsdýragarður á móti þar sem börnin geta leikið sér að vild. Á öllum herbergjum er sjónvarp og myndbandstæki og hægt að velja úr myndum til að horfa á. Þá er hægt að fá barnarúm. Ekki er boðið upp á morgunverð en öll aðstaða er í eldhúsi fyrir gesti og þeir sjá sjálfir um að fá sér morgunverð eða elda.
Verslunarmiðstöð er á móti gistihúsinu og veitingastaður við hliðina. Það tekur um það bil þrjár mínútur með lest niður í miðbæ. Lestin gengur allan sólarhringinn á sex mínútna fresti og stoppar rétt hjá LaVilla. Þeir sem það kjósa eru sóttir á flugvöllinn en það kostar 100 krónur danskar eða um 1000 krónur. Þá er líka stutt á ströndina frá gistihúsinu sem er að mestu sótt af Íslendingum yfir sumarið.
Þá geta gestir Vilborgar fengið nudd, svæðanudd, alnudd, ilmolíunudd eða heilunarnudd en hún er lærður nuddari. Gisting fyrir tvo kostar 400 danskar krónur sólarhringurinn sem er um 4.600 íslenskar og 100 krónur fyrir hvern gest í viðbót eða um 1.150 krónur. Svítan kostar 550 krónur danskar fyrir tvo að sumri til eða um 5.700 íslenskar og svo 100 krónur aukalega á gest. Á veturnar fer verðið niður í 400 kr. vikan. Ókeypis er fyrir ungbörn sem sofa í sama rúmi og foreldrarnir.