utlond.is
Staður
Gisting
First Hotel Vesterbro 4*
Vesterbrogade 23-29
DK 1620 Köbenhavn V
Sími: +45 33 78 80 00
Netfang: reception.copenhagen@firsthotels.dk
Vefslóð: www.firsthotels.com


Með sínar fjórar stjörnur og 403 herbergi verður First Hotel Vesterbro að teljast fullboðlegur kostur. Hótelið hefur nýlega verið standsett frá grunni og hafa endurbæturnar tekist sérlega vel en miðrýmið er sérlega skemmtilegt en það er yfirbyggður bakgarður, Atriumhaven. Þar er morgunverður snæddur og hægt að fá drykk um kvöldið.

Herbergin eru hlýleg og snyrtileg en hótelið er nálægt brautarstöðinni. Icelandair hefur til skamms tíma látið áhafnir sínar gista þarna sem eru meðmæli í sjálfu sér.

Öll herbergin eru innréttuð með nýmóðins og smekklegum hætti. Parket er á gólfum og húsgögn eru úr spænskum kirsuberjaviði. Herbergin eru vel búinn og öllum nýjustu þörfum tölvuferðalangsns.

Staðsetningin er góð, nálægt miðbænum en aðeins er um fimm mínútna gangur yfir í Tívolí. Rétt er þó að taka fram að hótelið er í þeim hluta Kaupmannahafnar þar sem næturlífið er hvað blygðunarlausast. Borgaryfirvöl hafa unnið mikið starf í að endurskipuleggja þennan hluta Kaupmannahafnar og tekist vel til að mörgu leyti.

Bílakjallari er undir hótelinu með næturvörslu.

Veitingastaður hótelsins er metnaðarfullur með glæsilegu úrvali vína.

Skrá umsögn
Fyrirsögn:
Umsögn:
Nafn þitt (birtist með umsögn):
Netfang þitt (birtist EKKI, notað til staðfestingar):
Ruslpóstvörn:
sjö plús einn =