utlond.is
Staður
Gisting
Admiral Hotel 4*
Toldbodgade 24-28
1253 København K
Sími: (0045) 3374 141
Vefslóð: www.admiralhotel.dk


Hótel með karakter. Þessi rúmlega 200 ára gamla bygging, sem var kornhlaða, var tekin í gegn árið 2001. Endurbæturnar tókust mjög vel og er hótelið eitt af mest spennandi nýjungum í Kaupmannahöfn. Burðarbitarnir í húsinu gera stílinn sérstakan og skemmtilegan.

Þetta er 4* hótel með þeim þægindum sem þeim fylgja, eins og sjónvarpi, internetaðgangi, minibar og sérbaðherbergi. Á 7. hæð eru sólbekkir og sauna. Í kjallaranum er næturklúbbur. Síðast en ekki síst er matsölustaðurinn Salt í húsinu, og er tilvalið að fá sér þar að borða, hvort sem gist er eða ekki.

Staðsetningin er mjög skemmtileg og hentug, hótelið er við höfnina á milli Amalienborg og Nyhavn.




Skrá umsögn
Fyrirsögn:
Umsögn:
Nafn þitt (birtist með umsögn):
Netfang þitt (birtist EKKI, notað til staðfestingar):
Ruslpóstvörn:
níu plús átta =