utlond.is
Staður
Gisting
Hotel Skt. Petri 5*
Krystalgade 22
1172 København K
Sími: (0045) 3345 910
Vefslóð: www.sktpetri.com


Hótel Skt. Petri var valið á lista ferðatímaritsins Condé Nast Travelers yfir 100 bestu nýju hótelin árið 2004 og var eina hótelið á Norðurlöndum sem þangað komst. Eins og við má búast á 5* hóteli eru öll helst þægindi og óþarfi að tíunda þau hér. Verðið er líka í samræmi við stjörnufjöldann.

Skt. Petri opnaði 1. júlí 2003 og er steinsnar frá Strikinu og því þægilega staðsett fyrir þá sem vilja dvelja í miðbænum.

Sama verð gildir allt árið. Boðið er upp á Medium, Large og XL-herbergi. Verð DK 1375, 1.575 og 2.575 /herb/nótt. Hægt er að hagstæð tilboð í gegnum íslenska bókunarvefinn www.kaupmannahofn.dk.

Skrá umsögn
Fyrirsögn:
Umsögn:
Nafn þitt (birtist með umsögn):
Netfang þitt (birtist EKKI, notað til staðfestingar):
Ruslpóstvörn:
fimm plús einn =