Herbergin á Phoenix Copenhagen eru í frönskum stíl, þar sem tíð Lúðvíks 16. er höfð að leiðarljósi. Öll herbergin eru með baðherbergi, sjónvarpi, minibar, öryggishólfi og buxnapressu. Hótelið er á góðum stað, stutt frá Kongens Nytorv og Strikinu. Hótelið er í dýrari kantinum, en ýmis tilboð eru í gangi eins og sérstök helgarverð, herbergi+kvöldverður o.s.frv. 213 herbergi.
Matsölustaðurinn Von Plessen er á jarðhæð, þekktur fyrir danska matseld.