Gentofte Hotel er staðsett í fínasta hverfi Kaupmannahafnarsvæðisins, en er þó ekki nema 8 km frá miðbænum. Er ívið ódýrara en sambærileg hótel í miðbænum.
Öll herbergi eru með baðherbergi, sjónvarpi og minibar. Boðið er upp á þvotta- og hreinsunarþjónustu. Herbergisþjónusta og boðið er upp á aðgang að interneti. Góður kostur fyrir þá sem vilja vera í huggulegu umhverfi fjarri skarkala miðbæjarins.