Allar leiðir liggja til Rómar, segir máltækið en Róm er ein af elstu borgum Evrópu en hún var miðstöð heimsveldis Rómverja í yfir 1000 ár. Á þeim tíma fékk hún nafnið ?borgin eilífa? en að lokum féllu múrar hennar og barbararnir ruddust inn. Um tíma bjuggu yfir ein milljón manna í borginni en eftir að hinar myrku miðaldir höfðu farið höndum um hana voru aðeins um 30.000 manns eftir.
Róm var stofnuð fyrir um það bil 2.700 árum og síðan hafa átt sér stað stöðugar breytingar á íbúaþróun borgarinnar. Fyrst var hún höfuðborg rómverska heimsveldisins en síðar varð hún höfuðborg kaþólsku kirkjunnar en Vatíkanið er staðsett í miðri Róm, nokkurskonar borg inni í borginni. Hið forna mál Rómar, latína, er nú útdautt sem talmál en áhrif þess varðveitast í öðrum tungumálum sem og önnur áhrif Rómar, svo sem í verkfræði og lögfræði.
Byggð hófst í Róm á járnöld en leifar mannvista hafa fundist þar frá 8. öld fyrir Krist. Árið 616 f. Kr. náðu Etrúar yfirráðum í borginni og héldu þeim þar til 509 þegar Róm varð að lýðveldi. Smám saman náðu Rómverjar yfirráðum yfir öðrum hlutum Ítalíu en að því loknu snéru þeir áhuga sínum að nágrannalöndunum. Á fyrstu öld f. Kr. réðu þeir Spáni, N-Afríku og Grikklandi. Á tíma rómversku keisaranna varð borgin að sannri heimsborg.
Á miðöldum hrundi veldi borgarinnar en þegar kom fram á 15. öld hófst endurreisn hennar með sívaxandi hlutverki í hinu rómverks-kaþólska veldi. Listamenn streymdu til borgarinnar og áhrifamiklar byggingar risu. Árið 1870 varð hún höfuðborg hins nýsameinaða ítalska ríkis sem hún hefur gengt síðan. Um leið hefur hún verið höfuðstaður héraðsins Lazio.
Borgin stendur við Tíberfljót og reis upphaflega á sjö hæðum á vestri bakka fljótsins gegnt Tíbereyju; Palatínhæð, Aventínhæð, Kapítólhæð, Kvirinalhæð, Viminalhæð, Eskvinalhæð, Janikúlumhæð.
Í dag búa í Róm rúmar tvær og hálf milljónir manna. Öll stjórnsýsla ítalska ríkisins, utan héraðsþing sjálfstjórnarhéraðanna fimm er í borginni. Höll forseta lýðveldisins er í Kvirinalhöll, sem áður var bústaður páfa. Að auki hýsir borgin ýmsar mikilvægar alþjóðastofnanir, eins og Alþjóða matvælastofnunina (FAO).