utlond.is
Staður
Glasgow
út úr kolareyknum

Glasgow hefur langa reynslu af stóriðju og framleiðsluiðnaði eða allt frá dögum iðnbyltingarinnar í Bretlandi. Borgin byggðist fyrst upp sem verslunarmiðstöð og var mikilvæg fyrir breska heimsveldið enda stundum sögð önnur helsta borg heimsveldisins næst á eftir London. Á þeim tíma streymdi verslunarauður til Glasgow og margar merkilegar byggingar risu. Síðar varð borgin mikilvæg í hönnunar- og arkitektasögu Bretlands.

Um tíma má segja að Glasgow hafi horfið í kolareyk og orðið nokkuð lík öðrum breskum iðnaðarborgum þegar hún nánast hvarf undir sót. Þegar leið fram á 20. öldina var lögð áhersla á að hreinsa borgina og gefa mörgum fallegum byggingum hennar rétta umgjörð. Þessi þróun hófst fyrir allmörgum árum og fékk byr undir báða vængi þegar Glasgow var tilnefnd Menningarborg Evrópu árið 1990. Tekið var til í borginni, gamlar glæsibyggingar voru hreinsaðar, torg og stræti endurhönnuð og vandaðar nýbyggingar reistar. Stefnt var að því að skipa þessari kraftmiklu og litríku borg veglegan sess meðal annarra menningarborga Evrópu. Árangurinn lét ekki á sér standa. Menningarstarfsemi blómstrar, fjöldi ferðamanna hefur margfaldast og borgin hefur nú mikið aðdráttarafl fyrir fjárfesta.

Það skipti líka miklu fyrir borgina þegar hún var tilnefnd arkitektúr- og hönnunarborg Bretlands árið 1999. Af því tilefni var haldin kraftmikil heilsárshátíð þar sem boðið var upp á um 300 viðburði svo sem alls kyns sýningar, fyrirlestra, skoðunarferðir og átaksverkefni til að bæta umhverfið. Miklum fjármunum var varið til þessa verkefnis og vekur það nokkra athygli að hluti þeirra kom úr þjóðarlottói Breta. Reynt var að höfða til sem flestra og virkja borgarbúa til þátttöku í þessari miklu arkitektúr- og hönnunarhátíð. Grunnhugsunin í þessu átaki er sú að umhverfismál, arkitektúr og hönnun komi öllum við og að samvinna við vel upplýsta og áhugasama borgarbúa sé forsenda góðs árangurs. Langtímamarkmiðið er að skapa umhverfi þar sem skilningur á arkitektúr og gildi góðrar hönnunar verði einkennandi fyrir íbúana, viðskiptalífið og menninguna.

Norðurhluti borgarinnar er nú mikilvægur hluti af nútímalistasögu, þar er til dæmis að finna listaskóla borgarinnar sem er afar falleg bygging.