utlond.is
Staður
  • Veitingastaðir
  • Verslanir
  • Gisting
  • Afþreying
  • Gott að vita
  • Áhugavert
  • Fréttir
  • Forsíða
Fréttir
Heimsferðir til Búda
Heimsferðir bjóða nú beint flug til Búdapest, einnar eftirsóttustu borgar Evrópu, sjötta árið í röð. Vorin og haustin eru vinsælir tímar í borginni en þá iðar hún af lífi auk þess sem menningarlífið er með fjörugasta móti. Búdapest stendur á einstökum stað við Dóná sem skiptir henni í tvennt: annarsvegar er Búda, eldri hluti borgarinnar, sem stendur í hlíð vestan árinnar og hinsvegar Pest.

Í Búda eru margar stórfenglegar byggingar, listaverk og sögulegar minjar. Má þar nefna Kastalahverfið, sem gnæfir yfir borgina og hina stórfenglegu Matthíasarkirkju, rústir Aquincum hinnar fornu borgar Rómverja, hellana og Gellért-hæðina með hinni 14 metra háu frelsisstyttu. Frá henni er frábært útsýni yfir Pest sem byggð er á sléttunni austan megin árinnar.

Í Pest er verslunarhverfið, leikhúsin og óperan. Þar blómstrar menningarlífið, en alla daga má velja um fjölda leiksýninga, tónleika eða listsýninga. Pest státar einnig af hinu fræga hetjutorgi og þinghúsinu, sem er hið þriðja stærsta í Evrópu. Ungverjar eru orðlagðir fyrir gestrisni og í Búdapest er frábært að njóta góðra veitinga og kynnast þessari heillandi og fögru borg í fylgd með fararstjórum Heimsferða.

Lengd flugs milli Íslands og Búdapest: 4 klst.
Gjaldmiðill: Forint (HUF)
Tungumál: Ungverska
Tímamismunur: +2 klst. á sumrin, +1 klst. á veturnar