utlond.is
Staður
  • Veitingastaðir
  • Verslanir
  • Gisting
  • Afþreying
  • Gott að vita
  • Áhugavert
  • Fréttir
  • Forsíða
Fréttir
Skíðaferð til Lech á góðu verði
Iceland Express auglýsir nú ódýrar skíðaferðir til Lech í Austurríki þar sem allir finna brekku við sitt hæfi hvort sem um er að ræða byrjendur eða meistara í íþróttinni.

Lech er eitt vinsælasta og eftirsóttasta skíðasvæði í Evrópu og þó víðar væri leitað. Þangað leitar þotulið Evrópu og ekki er útilokað að rekast á drottninga, kónga, prinsa og heimsfræga kvikmyndaleikara í næstu lyftu, krá og/eða bar. Það er um klukkustunda akstur frá áfangastað Iceland Express Friedrichshafen og til Lech.

Lech er einstaklega skemmtilegur bær með góðum verslunum, veitingastöðum og krám. Það er mikið líf og fjör í bænum ekki síst eftir að allir koma niður úr brekknum um kl. 17:00 þá er alls staðar tónlist, Gluhwein o.fl. Í Lech líður öllum vel og þar hefur verið íslenskur skíðakennari í 25 ár, Úlrik Antonsson og segir það mikið um staðinn.

Gist verður á 3* hóteli rétt við miðbæinn, Hotel Felsenhof. Þar hafa margir Íslendingar gist og allir verið jafn ánægðir með aðbúnaðinn á hótelinu. Herbergin eru rúmgóð og mjög gott gufubað er á hótelinu og hvíldaraðstaða. Örstutt í lyftu bara bak við húsið og eins stoppar strætisvagn fyrir utan húsið og fer á aðallyftustöðina, þaðan liggja leiðir til allra átta. http://www.felsenhof.at/gesamt_e.htm

Verð á mann í tvíbýli kr. 214.000 innifalið í verði er flug með sköttum, og gisting á Hotel Felsenhof með morgunverði og þríréttuðum kvöldverði. Akstur til og frá flugvelli er ekki innifalinn.

Aukagjald fyrir eins manns herbergi er kr. 4.500 á nótt.