utlond.is
Staður
  • Veitingastaðir
  • Verslanir
  • Gisting
  • Afþreying
  • Gott að vita
  • Áhugavert
  • Fréttir
  • Forsíða
Fréttir
Golfferð til Bonalba
Bonalba-golfvöllurinn er staðsettur rétt fyrir neðan Bonalbafjöllinn, sem blasa við í nágrenni Alicante. Þessi golfvöllur hefur notið vinsælda síðustu 15-20 árin og hefur öll umgjörð og umhirða batnað með hverju ári en Iceland Express býður ferðir þangað.

Brautir eru fjölbreyttar og liggja um hlíðarnar, ólíkar hver annarri með frábærum flötum enda er þessi golfvöllur í uppáhaldi hjá mörgum íslenskum kylfingum. Glæsilegt nýtt SPA er í boði í nýbyggðu húsi við klúbbhúsið.

Hótel Bonalba er 5 ára gamalt 4* hótel með góðum herbergjum, stórum sundlaugargarði, veitingastöðum, börum, einfalda og skemmtilega hönnun og helstu þægindi, sem prýða má þetta nýja hótel. Stjórnendur hótelsins hafa lagt upp með háar kröfur um góða þjónustu.

Myndir og nánari upplýsingar má finna á: www.hotelbonalba.com

Verð pr mann í tvíbýli í 7 daga golfferð er kr. 163.900.-

Verð pr mann í tvíbýli í 9 daga golfferð er kr. 189.600.-

Innifalið er: Flug m/sköttum, frítt fyrir golfsettið, gisting m/morgunverði og hálfu fæði, 7 daga ótakmarkað golf (viðbótargolf er eingöngu hægt að bóka eftir að 18 holu leik er lokið og ef lausir rástímar eru til), frítt í SPA, akstur til og frá flugvelli og fararstjórn.