utlond.is
Staður
  • Veitingastaðir
  • Verslanir
  • Gisting
  • Afþreying
  • Gott að vita
  • Áhugavert
  • Fréttir
  • Forsíða
Fréttir
Skaplegt verð til London
Heimsborginni London á marga aðdáendur á Íslandi en hún er með eitthvert fjölbreyttasta mannlíf sem um getur. Fyrir nú utan alla þá afþreyingu sem borgin býður gestum sínum upp á. Hvar er meira úrval leiksýninga, tónleika, safna, sýninga, söngleikja, kráa, kaffibara og veitingahúsa á heims mæli kvarða.

Expressferðir hafa kappkostað að gefa öllum sínum farþegum tækifæri á að heimsækja London á viðráðanlegu verði og gista á góðu 3* hóteli Royal National sem er vel staðsett í hjarta borgarinnar og það skiptir miklu máli að flest allt sem markvert er í miðbænum sé í göngufæri.
Missið ekki af þessu tækifæri og þetta er upplagt fyrir hópa og stofnanir sem vilja fara í ódýra helgarferð. Expressferðir bjóða líka upp á skoðunarferð um borgina ef óskað er eftir því undir leiðsögn þaulkunnugs fararstjóra í London Ingibjargar Þórðardóttur.

Verð á mann í tvíbýli er 56.900 og innifalið í verði er flug með sköttum og gisting með morgunverði.

London helgarferðir í des, jan, feb og mars eru á eftirfarandi dögum:

11-13. des
08.-10. jan
05-07. feb
12-14. mars