utlond.is
Staður
  • Veitingastaðir
  • Verslanir
  • Gisting
  • Afþreying
  • Gott að vita
  • Áhugavert
  • Fréttir
  • Forsíða
Fréttir
Brotist til Búdapest
Fararstjórar: Lilja Hilmarsdóttir og Þórarinn Sigurbergsson.

Boðið er upp á 5 daga ferð til hinnar stórkostlegu Budapest fyrir mjög sanngjarnt verð og það í beinu flugi.

Farþegar hafa alveg 4 og hálfan dag í borginni.

Höfuðborg Ungverjalands hefur ávallt þótt með fegurstu borgum sem gefur að líta. Lega borgarinnar er einstök. Ein fegursta á Evrópu Dóná skiptir borginni í Buda og Pest. Þessir borgarhlutar eru gjörólíkir en hvor um sig einstaklega fallegur og áhugaverður. Pest er á sléttunni frægu og Buda á hinum þekktu Budahæðum.

Fáar borgir eiga jafn viðamikla sögu og Budapest. Menning hennar er eins og einn bræðslupottur þar sem margir hafa lagt sitt að mörkum til að gera hana einkar spennandi hvort sem er í hönnun húsa og halla, matargerð, tónlist og/eða geðslagi íbúanna.

Nokkrar minjar eru um veru Tyrkja í borginni í 150 ár m.a. elsta baðhús borgarinnar, en Budapest er fræg fyrir “böðin” sín og ekki er hægt að gista borgina nema fara í eitt þeirra. Böðin eru félagsmiðstöðvar Budapest eins og krár í Englandi.

Gist á 4* hóteli Hotel Mercure Korona, sem er staðsett í hjarta miðborgarinnar í Pest. Einnig stendur til boða að gista á Radisson Hotel Beke sem er 4*+.

Dagskrá ferðarinnar er:

Fimmtudagur 11. mars. Flogið í beinu flug kl. 7:00 og lending í Budapest er kl. 12:10. Eins klukkutíma munur er á Íslandi og Ungverjalandi á þessum tíma. Áætlunarbíll bíður og flytur farþega á hótel. Síðan er síðdegið frjalst til að litast um í miðbænum. Mikið af góðum veitingastöðum nálægt hótelinu og verða fararstjórar farþegum innan handar með val á þeim.

Föstudagur 12. mars. Skoðunarferð um borgina hefst kl. 10:00. Hún er farin undir leiösögn fararstjóranna, sem gjörþekkja Budapest, sögu hennar fyrr og nú. Farið verður á alla markverðustu staðina eins og Hetjutorgið, Buda hæðirnar, Mattheusar kirkjuna, þinghúsið, Óperuna, Géllert hæðina o.s.frv. Ferð sem enginn má missa af. Stendur yfir í 4 klukkustundir. Verð 30 evrur á mann.

Iceland Express býður upp á ferð til Budapest laugardaginn 13. mars. Boðið upp á gönguferð um hluta Pest þar sem m.a. er gengið um Gyðingahverfið, slóðir Franz Liszt og farið á elsta kaffihús borgarinnar. Mjög spennandi kostur að taka þátt í þessari gönguferð.

Sunnudagur 14. mars. Frjáls dagur að öðru leyti en því að farþegum stendur til boða að fara siglingu á Dóná sem stendur yfir í 2 klukkustundir.

Mánudagur 15. mars. Þetta er brottfarardagur en ekki verður farið út á flugvöll fyrr en síðdegis. Farþegum stendur tvennt til boða annars vegar að vera í borginni fram að brottför eða leggja af stað kl. 10:30 út á Sléttuna og heimsækja búgararð þar sem er borðað, drukkið og ferðast um sléttuna á hestvögnum, horft á ungverja leika listir sínar á hestbaki, dans og söng. Þarna kynnast farþegar þjóðarsál Ungverja og gömlum hefðum. Ógleymanlegt og alltaf mikið fjör. Síðan er ekið út á flugvöll og komið þangað kl.17:15 og brottför til Íslands kl. 19:10. Verð 50 evrur fyrir allan daginn með mat og drykk og skemmtiatriðum.

Verð á mann í tvíbýli kr. 88.700. Innifalið flug með sköttum, gisting á 4* hóteli með morgunverði á Hotel Mercure Korona 4* í hjarta borgarinnar í fjórar nætur. Íslensk fararstjórn.
Aukagjald vegna einbýlis kr. 18.500.

Skoðunarferðir og rúta til og frá flugvelli eru ekki innifaldar.