utlond.is
Staður
  • Veitingastaðir
  • Verslanir
  • Gisting
  • Afþreying
  • Gott að vita
  • Áhugavert
  • Fréttir
  • Forsíða
Fréttir
Helgi í Berlín
Expressferðir bjóða upp á helgarferð til Berlínar, hinnar vinsælu borgar sem fagnar frelsi sínu s.l. 20 ár eftir að Múrinn féll. Borgin er stórkostleg, margt að sjá og skoða. Byggingar frá hinum ýmsu tímaskeiðum, sem sýna ástand borgarinnar á hverju skeiði fyrir sig. Nauðsynlegt er að fara í hinar fróðlegu skoðunarferðir, sem standa farþegum til boða á meðan á dvölinni stendur. Það er mál manna að það megi alls ekki missa af þeirri ferð.

Flogið til Berlínar föstudaginn 5. mars kl. 15:30 og lending á Schönefeld flugvelli rétt við borgarmörkin kl. 19:50. Ekið á Park Inn hótelið á Alexanderplatz, sem margir Íslendingar þekkja af góðu einu. Staðsetning hótelsins og allur aðbúnaður er með því besta sem völ er á.

Farþegum stendur til boða að fara saman í áætlunarbíl og er verð á mann 20 evrur.

Boðið upp á skoðunarferð með íslenskri leiðsögn laugardaginn 6. mars kl. 10-14:00. Verð 30 Evrur á mann. Einnig er í boði gönguferð um hulda heima austur Berlínar á sunnudeginum kl. 11 og stendur yfir í ca. 2 klukkustundir verð 10 evrur.

Lágmarksþátttaka er 20 manns.

Brottför frá hóteli mánudaginn 8. mars kl. 18:00. Lending á Íslandi kl. 23:30
Verð á mann í tvíbýli 77.900.
Aukagjald fyrir einbýli 16.800.