utlond.is
Staður
  • Veitingastaðir
  • Verslanir
  • Gisting
  • Afþreying
  • Gott að vita
  • Áhugavert
  • Fréttir
  • Forsíða
Fréttir
Heimsferðir beint til Barcelona
Heimsferðir bjóða beint flug í vor til Barcelona, tískuborgar Evrópu, eins og undanfarin ár. Í Barcelona er auðvelt að njóta daganna og heimsækja hin frægu listasöfn Mirós og Picassos, eða skoða byggingarlist sem er ólík allri annarri í heiminum. Gamli hluti borgarinnar, Barrio Gotico er frá 13. öld og hefur einstakt aðdráttarafl sem gaman er að upplifa á göngu um þröng strætin, innan um gallerí, veitingastaði, verslanir og söfn og drekka í sig mörghundruð ára gamla sögu borgarveggjanna. Borgin er kjörinn vettvangur fyrir lífskúnstnera því þar er að finna ótrúlegt úrval listasafna, veitingastaða og fagurra garða. Í Barcelona er iðandi mannlíf jafnt að nóttu sem degi, frægustu veitingastaðir og skemmtistaðir Spánar, blómlegt tónlistarlíf og síðast en ekki síst, frábært veðurfar.

Lengd flugs milli Íslands og Barcelona: 4 klst.
Gjaldmiðill: Evra
Tungumál: Spænska
Tímamismunur: +2 klst. á sumrin, +1 klst. á veturnar